Frá Marbendli

Mér er í minni stundin,
þá marbendill hló;
blíð var baugahrundin,
(er bóndinn kom af sjó);
kyssti hún laufalundinn,
lymskan undir bjó.
Sinn saklausan hundinn
sverðbaldur sló.

Á suðurnesjum er bæjarþorp nokkurt, sem heitir í Vogum, en raunar heitir þorpið Kvíguvogar, og svo er það nefnt í Landnámu. Snemma bjó bóndi einn í Vogum, er sótti mjög sjó, enda er þar enn í dag eitthvert bezta útræði á Suðurlandi. Einhvern dag reri bóndi sem oftar, og er ekki í það sinn neitt sérlegt að segja af fiskfangi hans. En frá því er sagt, að hann kom í drátt þungan, og er hann hafði dregið hann undir borð, sá hann þar mannslíki og innbyrti það. Það fann bóndi, að maður þessi var með lífi og spurði hann, hvernig á honum stæði; en hann kvaðst vera marbendill af sjávarbotni. Bóndi spurði, hvað hann hefði verið að gera, þegar hann hefði ágoggazt. Marbendill svaraði: „Ég var að laga andskjólin fyrir eldhússtrompnum hennar móður minnar. En hleyptu mér nú niður aftur“. Bóndi kvað þess engan kost að sinni, „og skaltu með mér vera“. Ekki töluðust þeir fleira við; enda varðist marbendill viðtals. Þegar bónda þótti tími til, fór hann til lands og hafði marbendil með sér, og segir ekki af ferðum þeirra, fyrr en bóndi hafði búið um skip sitt, að hundur hans kom á móti honum og flaðraði upp á hann. Bóndi brást illa við og sló hundinn. Þá hló marbendill hið fyrsta sinn. Hélt bóndi þá áfram lengra upp á túnið og rasaði þar á þúfu eina og blótaði henni; þá hló marbendill í annað sinn. Bóndi hélt svo heim að bænum; kom þá kona hans út í móti honum og fagnaði bónda blíðlega, og tók bóndinn vel blíðskap hennar. Þá hló marbendill hið þriðja sinn. Bóndi sagði þá við marbendil: „Nú hefur þú hlegið þrisvar sinnum, og er mér forvitni á að vita, af hverju þú hlóst“. „Ekki geri ég þess kost“, sagði marbendill, „nema þú lofir að flytja mig aftur á sama mið og þú dróst mig á“. Bóndi hét honum því. Marbendill sagði: „Þá hló ég fyrst, er þú slóst hund þinn, er kom og fagnaði þér af einlægni. En hló ég hið annað sinn, er þú rasaðir um þúfuna og bölvaðir henni; því þúfa sú er féþúfa, full af gullpeningum. Og enn hló ég hið þriðja sinn, er þú tókst blíðlega fagurgala konu þinnar; því hún er þér fláráð og ótrú; muntu nú efna öll orð þín við mig og flytja mig á mið það, er þú dróst mig á“. Bóndi mælti. „Tvo af þeim hlutum, er þú sagðir mér, má ég að vísu ekki reyna að sinni, hvort sannir eru, tryggð hundins og trúleik konu minnar; en gera skal ég raun á sannsögli þinni, hvort fé er fólgið í þúfunni, og ef reynist, er meiri von, að hitt sé satt hvort tveggja, enda mun ég þá efna loforð mitt“. Bóndi fór síðan til og gróf upp þúfuna og fann þar fé mikið, eins og marbendill hafði sagt. Að því búni setti hann skip til sjávar og flutti marbendil á sömu mið, sem hann hafði dregið hann á; en áður en bóndi lét hann fyrir borð síga, mælti marbendill: „Vel hefur þú nú gert, bóndi, er þú skilar mér móður minni heim aftur, og skal ég að vísu endurgjalda það, ef þú kannt til að gæta og nota þér. Vertu nú heill og sæll, bóndi“. Síðan lét bóndi hann niður síga, og er marbendill nú úr sögunni.                      

Það bar til litlu eftir þetta, að bónda var sagt, að sjö kýr sægráar að lit væru komnar þar í túnjaðarinn við fjöruna. Bóndi brá við skjótt og þreif spýtukorn í hönd sér, gekk svo þangað, sem kýrnar voru; en þær rásuðu mjög og voru óværar. – Eftir því tók hann, að þær höfðu allar blöðru fyrir grönum. Það þóttist hann og skilja, að hann mundi af kúnum missa, nema hann fengi sprengt blöðrur þessar. Slær hann þá með kefli því, er hann hafði í hendi sér, framan á granirnar á einni kúnni, og gat náð henni síðan. En hinna missti hann, og stukku þær þegar í sjóinn. Þóttist hann þá skilja, að kýr þessar hefði marbendill sent sér í þakkarskyni fyrir lausn sína. Þessi kýr hefur verið hinn mesti dánumannsgripur, sem á Ísland hefur komið; æxlaðist af henni mikið kúakyn, sem víða hefur dreifzt um land og er allt grátt að lit og kallað sækúakyn. En það er frá bónda að segja, að hann varð mesti auðnumaður alla ævi. Hann lengdi og nafn byggðar sinnar og kallaði af kúm þessum, er á land hans gengu, Kvíguvoga, er áður voru kallaðir Vogar.

Frá marbendli endurskrifað

Á suðurnesjum er bæjarþorp sem heitir Vogar en við landnám var þorpið kallað Kvíguvogar. Það er saga að segja frá því hvernig þorpið fékk nafnið Kvíguvogar. Það var þannig að í eldgamla daga bjó í Vogunum bóndi einn sem sótti sjó. Þarna var nefnilega eitt af bestu útræðunum á Suðurlandi með mikinn fisk. Eitt skiptið þá fór bóndi út á sjó að veiða og er það ekki í frásögur færandi nema hvað að allt í einu fangaði hann eitthvað þungt í netið sitt. Þegar hann dró netið um borð þá sá hann sjóveru í mannslíki. Sjóveran var sem betur fer lifandi og spurði bóndi veruna hvernig stæði á því að hann hefði fastnað í netinu. Veran sagðist vera marbendill sem ætti heima á sjávarbotninum. Þá spurði Bóndi: Hvað varstu að gera þegar ég veiddi þig? Marbendillinn svaraði: Ég var að hjálpa henni móður minni að laga eldhússtrompinn. Slepptu mér nú svo ég geti farið heim.

Bóndinn vildi ekki sleppa marbendlinum og sagði að hann ætti að koma með sér heim. Marbendill vildi þá ekki tala við bónda frekar og varðist viðtals. Þegar bóndi var búin að veiða nóg fór hann til lands og tók marbendilinn með sér. Þegar bóndinn var búinn að ganga frá skipinu sínu þá kemur hundurinn hans hlaupandi á móti honum og flaðrar upp um hann. Bóndinn bregst harkalega við og slær hundinn. Þá hló marbendill hið fyrsta sinn. Hélt bóndi áfram lengra upp á túnið og hrasaði þar á þúfu sem hann blótaði í sand og ösku. Þá hló marbendill í annað sinn. Bóndi hélt svo heim að bænum þar sem konan tók á móti honum blíðlega og tók bóndinn vel blíðskap hennar. Þá hló marbendill hið þriðja sinn.

Bóndi sagði þá við marbendil: Nú hefur þú hlegið þrisvar sinnum og mig langar að vita afhverju þú hlóst. Marbendill svarar: Ég mun ekki segja þér afhverju ég hló nema þú sleppir mér aftur á sama mið og þú dróst mig á. Bóndi lofar honum því. Marbendill segir þá: Fyrst hló ég því þú slóst hundinn þinn sem fagnaði þér af einlægni. Ég hló í annað sinn þegar þú hrasaðir um þúfuna og bölvaðir henni því að hún er féþúfa sem inniheldur fullt af gullpeningum. Að lokum hló ég í þriðja sinn þegar þú tókst blíðlega fagurgala konu þinnar því hún er þér svikul og ótrú. Nú skaltu standa við loforð þitt og fara með mig á sömu mið og þú dróst mig. Bóndi svarar þá: Ég get aðeins sannað eina af þessum þremur staðhæfingum sem þú hefur sagt mér. Því ég get ekki sannað tryggð hundsins eða trúleik konu minnar. Ég ætla reyna á sannsögli þína og athuga hvort að fé er fólgið í þúfunni, ef svo er þá er líklegt að hitt sé líka satt og mun ég þá efna loforð mitt. Bóndi fór síðan að þúfunni, gróf hana upp og reyndist þar vera fé mikið eins og marbendill hafði sagt. Að því búnu setti bóndi skip til sjávar og flutti marbendil á sömu mið sem hann hafði dregið hann á. Áður en marbendill stökk til sjávar þá segir hann við bónda: Vel hefur þú nú gert, bóndi, þegar þú skilar mér aftur heim til móður minnar. Ég mun því endurgjalda þér það en þú verður að vita hvað á að gera. Vertu nú heill og sæll, bóndi. Er nú marbendill úr sögunni.

Stuttu eftir þetta var bónda sagt frá því að á túnjaðrinum hans við fjöruna væru sjö sægráar kýr. Bóndi brást snögglega við, þrífur í spítu sem lá þar nálægt og heldur af stað þar sem kýrnar voru. Kýrnar voru mjög óværar og rásuðu mikið. Hann tekur eftir því að kýrnar höfðu allar blöðru fyrir grönum. Telur hann nú að hann þurfi að sprengja blöðrurnar til að geta eignast kýrnar. Slær hann þá með spítuna á blöðruna á einni kúnni og gat náð henni. En hinar kýrnar stukkku í sjóinn. Skilur hann þá að kýrnar hafi marbendill sent sér í þakkarskyni fyrir að sleppa honum. Kýrin sem hann náði var hinn mesti dánumannsgripur sem á Íslandi hefur sést og æxlaðist af henni mikið kúakyn. Kúakyn þetta dreifðist um allt land og kallast sækúakyn. Bóndi var upp frá þessu hinn mesti auðnumaður og fengu Vogarnir nafnið Kvíguvogar útaf kúnum hans.

Orðaspjall

Heimspekilegar samræður

Kveikjur út frá skynjun, sköpun og útinám

%d bloggers like this: